...þetta er nú meiri sora munnirinn á þessum kennurum.
Eins og Arna var búin að nefna þá vorum við í kroppateikningu í vikunni sem var mjög skemmtilegt og krefjandi.
Mér finnst ég loksins vera að gera eitthvað sem ég nýt alveg í botn að gera. Er að læra að gera tískuteikningar, alls konar mismunandi snið, vinnuteikningar og teikningar sem eiga að vera lesanlegar fyrir hvern þann sem ætlar að sauma flíkurnar. Ekki má heldur gleyma því að við lærðum líka í dag hvernig eigi að gera snið í illustrator forritinu sem Finnur bróðir reddaði mér einmitt áður en ég fór. Takk fyrir það Finnur, nú get ég nördast aðeins utan skólans af því að það verður víst ekki mikið farið í þetta í skólanum, bara rétt grunninn.
Var að borga skólagjöldin núna rétt áðan og af því að ég bý, enn sem komið er, í Kaupmannahafnar kommúnu, þá þarf ég 'bara' að borga skólagjöldin sem eru gefin upp á heimasíðunni. Núna kemur stórt en. EN af því að við erum að flyta til Fredriksberg þá gætum við þurft að borga nokkra DANSKA þúsundkalla í viðbót. Klöppum fyrir því!
Þannig að planið er að skýla okkur á bak við þá 'staðreynd' að við 'vissum' ekki betur, við bjuggum jú í kaupmannahafnarkommúnu þegar við borguðum gjöldin og tæknilega séð verðum við áfram skráðar á gamla heimilisfangið þangað til við ákveðum annað.
Hljómar þetta ekki eins og nægilega sannfærandi rök?
Mér finnst það (ekki).
Hver getur reddað mér vinnu í Kaupmannahöfn þar sem uppáhalds setningarnar mínar eru leyfðar:
Kan du tale lidt langsamer?
Undskyld, jeg kan ikke forstaa hvad du siger?
Jæja, vindsængin kallar.
Góða nótt
-Áslaug
29 ágúst 2008
Kroppateikningin þín er pissufín og skítagóð...
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Heyrðu já, ein hugmynd er að þú bara kaupir þér svona heyrnatæki (ebay t.d., getur verið gervi) og þykist vera heyrnaskert. Þá ertu s.s. orðin fatlafól og þá geturðu afsakað það :) Þá ertu s.s. ekki 'trega íslenska stelpan', þá ertu 'fatlaða íslenska stelpan' :D Hljómar það ekki bara dúndur vel!? ;)
En já, NÝTT ÚTLIT! Voooóóóóóóó! Cool ;) ahaha
Og með skólann, það er bara að taka blondínuna á þetta. Cleavage er þokkalega málið, og e-ð ofurtöff outfit, eins og skólabúningur með háum sokkum, hjúkkubúningur, klappstýrubúningur, eða því danir eru nú soddan sælkerar að vera í svona 'candy shop girl' búning, það slær POTT ÞÉTT í gegn. Þetta auðvitað virkar líklegast ekki ef þið talið við konu, en ef þið talið við kall, þá gætuð þið jafnvel dottið í lukkupottinn og fengið fría gistingu í leiðinni í staðin fyrir að elda, þrífa og "gefa nudd" ;) Þið bara endilega reynið þetta og segið mér svo hvernig fer ;) Muna líka gullnu regluna!
Þið munið líka gullnu frasana stelpur. Þeir ættu að koma ykkur út úr öllum vandræðum.
1. "Bare rolig, det er kun min hånd."
2. "Min røv er i dine hænder, okay?"
3. "Jeg er kun her for at fixe kablet."
4. "Kan jeg spise dette?"
5. "Det ligner en appelsin i en sok."
6. "Du kan sutte min vingummibamse."
7. "Du ødelagde min fødselsdag."
8. "Jeg vil have min advokat."
Cool ok, bæ!
þú getur prófað Joe Boxer sem ég held að sé á strikinu.. það eru Íslendingar sem eiga þá verslun og ráða oft Íslendinga, eða mér skildist það alla veganna.
Topshop líka... starfsfólkið er oft íslenskt þar þegar ég hef farið þangað og ein stelpan þar sagði mér að "það vinna eiginlega bara íslenskar stelpur þarna".
Skrifa ummæli