...svefngalsi á leiðinni á Mc.D. og þetta lag kom uppí huga mér...
Heim í fyrramálið!
Vonandi finnur Arna hjól handa okkur á meðan ég er í burtu.
Mig langar í þetta hjól!
15 ágúst 2008
Hey KANÍNA....
14 ágúst 2008
Mér finnst rigningin góð....
... en samt ekkert voðalega...
Erum komnar með dönsk símanúmer
25 82 52 57 - er ég (arna) og
25 82 52 58 - er Áslaug
...og svo náttla ef þið hringið frá Íslandi þá þurfið þið að bæta við 0045 fyrir framan.
Endilega verið óhrædd við að hringja ;)
Það er soldið skrítið að vera svona ein í útlöndum... eða... er náttúrulega ekki alveg ein. En þessa vikuna er Áslaug búin að vera í skólanum og ég hef þurft að hafa ofan af sjálfri mér.
Hef reynt að forðast það að hanga heima vegna þess að þar eru engin húsgögn og þrír kettir sem eru SÍ-mjálmandi (án gríns! þeir þagna ekki nema í svona klst á dag. Rétt á meðan að þeir eru að gúlpa ofan í sig matnum sínum og melta hann. Geta reynt soldið á taugarnar...).
Var búin að sjá fyrir mér að ég gæti bara legið úti í einum af görðum Kaupmannahafnar lesandi bækur og verið soldið menningarleg. En mér til mikillar ánægju hefur verið rigning upp á hvern einasta dag, þannig að öll menningar-garða-plön hafa ekki verið gerleg. Voða gaman. Þetta er ekki brjáluð rigning. Bara soldið íslensk að mörgu leyti. Það styttir alltaf upp inn á milli og göturnar þorna og svoleiðis en svo um leið og maður stígur fæti út fyrir dyr þá byrjar að dropa pínu... eða hellirigna. Er til dæmis rennandi blaut núna í fæturna og upp á mið læri eftir að hafa labbað til Steinars Atla í morgun (plataði hann í taka smá pakka með sér heim handa tilvonandi afmælisbarni (eða konu...)).
En jæja, sumir eru líklega soldið forvitnir að vita hvernig íbúða mál ganga hjá okkur...
Er að fara að kíkja á litla íbúð á mánudaginn og svo er ég í e-mail sambandi við tvo aðra aðila upp á að fá kanski að leigja herbergi af þeim... Vona að eithvað af þessu gangi eftir!
Annars er Áslaug að fara heim að vinna núna á laugardaginn og verður út vikuna. Ef einhver skemmtilegur er að fara að kíkja út til kóngsins þá endilega látið vita af ykkur ;)
Er samt að fara að byrja í skólanum þannig að ég verð ekki alveg aðgerðarlaus þessa vikuna sem hún er heima. Og svo er fyrsta Fest skólans á föstudaginn eftir að ég byrja. Hlakka soldið til þess ;)
Jæja bless í bili
xoxo
Arna Dögg