09 ágúst 2008

Ótrúlega fullorðins....

...alltaf að spá í því hvað allt kostar og finna út með hinum snúnustu reikningum hvernig hægt sé að spara. Þetta er víst kallast að fullorðnast og forðast það að vera á kúpunni. Veit ekki hvort mig langi til að vera fullorðin lengur!


Í dag er ég að gera persónulegt met. Ég er bara í rólegheitunum í kvöld og reyndar í gær líka, ótrúlegt. Önnur staðfesting á að maður sé að fullorðnast, eða hvað?

Eitt dæmi um kjarakaup:

Keyptum þetta alveg hreint frábæra múslí, í eins kílós pakkningu. Góð kaup? Já.
En eftir nokkra morgna með múslíi og jógúrti, safa og vínberjum þá fórum við að velta því fyrir okkur hversu lengi við myndum endast. Ákváðum að næst skyldum við kaupa Kellog's og mjólk.



Annað dæmi um kjarakaup:


Stór kassi sveppum. Getum notað þá á samlokur (kvöldmaturinn í kvöld), í pastarétt (kvöldmaturinn í gær), sveppir með kókinu... já, það er í alvörunni gott.


Og af því að við erum svo mikið að spara og svona skemmtilegt þá hugsum við aldrei neitt út fyrir þessar viðurkenndu máltíðir. Einu máltíðirnar sem eru á verslunarplaninu okkar eru morgunmatur, hádegismatur og kvöldmatur.





Rétt í þessu löbbuðu tveir krakkar að okkur hérna í þessu skemmtilega horni á Mcdonalds og horfðu á okkur og glottu út í annað. Kannski svolítið undarleg sjón, tvær ungar stelpur sem sitja við tölvur úti í horni og pikka eins og óðar séu til þess að nýta þennan klukkutíma sem þær fá frítt á veraldarvefnum í boði Mcdonalds.

Mig langaði mest að segja við þau: Hey ég er allavegana ekki berfætt í náttbuxum og að borða á mcdonalds klukkan 11 að kvöldi til!

Hefði pottþétt gert það hefði ég kunnað það...



10 min. til stefnu. Best að nýta tímann vel.


Bless í bili
Áslaug

08 ágúst 2008

McDonalds, McDonalds, Kentucky Fried Chicken og Pizza Hut

Bara svo að það sé á hreinu þá er það ekki á matseðlinum okkar. Titill þessa blogs á að syngjast!

Well... dagur 3 og við erum enn á lífi ;)

Erum að reyna að finna okkur gott símakerfi til að joina en það gengur svona upp og ofan. Voða mikið af ruglingslegum upplýsingum á netinu. Frítt þetta en borgar smá fyrir hitt... og samkvæmt Ebbu getur þetta hitt verið Mjög dýrt. Þannig að við ætlum bara að fara á næstu bensínstöð og segja bara úllen dúllen doff...

Copenhagen fashion week er í gangi núna. Ráðhústorgið er fullt af skinny models með eins hárgreiðslu. Soldið fyndið. Svo er run-way-show-ið sýnt á stórum skjá á torginu. Gaman að þessu :D

Annars er McDonalds að gera góða hluti, internetlega séð... eða allavegana þessi frábæri nágranni þeirra sem hefur gleymt að læsa netinu sínu. STUPID!!!.....


Næst komum við hingað klukkan 9 þegar opnar og byrjum að hala niður ólöglegum varning í stórum stíl. Gott að hafa tvær tölvur!!! :P


Bless í bili ;)

07 ágúst 2008

Komnar....

Jæja, þá erum við komnar til útlandsins. Erum í Valby í íbúðinni hennar Ebbu þar sem tveir af þremur köttum eru þeir frekustu sem ég hef hitt! En rotturnar eru ágætar, vitum varla af þeim þar sem að þær eru bara úti á svölum mest allan daginn. Tökum þær bara inn á kvöldin.
Sitjum núna á Mc Donalds þar sem að við getum verið með frítt net í eina klst á dag. Þurfum reyndar að hafa verslað eithvað hjá þeim. En við höldum því í algjöru lágmarki, kyptum eina kók :P
Annars er frekar skrítið að vera svona útlendingur en ekki túristi í öðru landi. Erum ekki á þönum að versla sem mest af fötum, skoða merkar minjar eða djamma frá okkur lífið.... Wierd...

Var samt að fá frekar pirrandi e-mail frá skólanum um að þar sem svo lítil þáttaka væri á design og arkitektur brautinni þá væri búið að ákveða að fresta skólabyrjun um viku og í staðinn yrði ekkert vetrarfrí.... frábært! hvað á ég að gera af mér fram til 18 ágúst? (án þess að eyða peningum?) Áslaugar braut byrjar 11. þannig að ég verð einhvernveginn að bjarga mér sjálf. Fara í langa göngutúra með bókina sem Adda frænka gaf mér um Kaupmannahöfn í hönd... eða eithvað álíka....

Jæja, bara 39 mín eftir af McDonalds netinu mínu eftir...

Látum heyra í okkur aftur við tækifæri ;)

03 ágúst 2008

Tíminn líður hratt...

...á gervihnattaöld. Hraðar sérhvern dag, hraðar sérhvert kvöld....

Icy hefur sannarlega lög að mæla!

Jæja, þá fer að líða að brottför. Aðeins tveir dagar til að klára allar seinustu reddingarnar og svo fljúgum við út snemma á miðvikudagsmorguninn!
Var að tala við Ebbu frænku sem ætlar að vera svo elskuleg að hýsa okkur fyrst um sinn. Verðum þarna í íbúð með þremur köttum og tveimur rottum! Eigum eftir að hafa það mjög kósý saman ;)
Svo er bara að krossleggja fingur og vonast eftir því að við finnum og fáum draumaíbúðina í september! Wish us luck!

Kveð í bili