23 ágúst 2008

I want to ride my bicycle, I want to ride my bike...

Seinnni partur þessarar skólaviku fór í það að hanna og svo búa til loftljós úr pappír og þunnum bambus prikum sem voru svo hengd upp í matsalnum. Miðvikudeginum eyddum við í að gera skissur og módel, minnst 5 mismunandi stykki. Á fimmtudaginn var gegnumgangur á módelunum og svo eitt valið til þess að gera í raunstærð. Og svo í gær kláruðum við að búa þau til og hengdum svo upp og skoðuðum og ræddum.
Tók rosalegan tíma að gera þetta og við vorum nokkuð mörg sem unnum framm eftir á fimmtudeginum til þess að eiga séns í að klára á föstudeginum. Soldið erfitt að lýsa því hvernig mitt er en það minnir á litla borg á hvolfi. Þar sem ljósið kemur út úr stærsta háhýsinu og svo eru aðrir minni kassar í kring. Tengdi það líka soldið við loftskreytingu sem er fyrir í matsalnum þannig að það virkar eins og það sé að vaxa út úr því... veit ekki hvort þetta meikar sens ;) Ætla annars að taka myndir af þessu í næstu viku. Veit að mamma vill fá að sjá svoleiðis ;)
Um kvöldið var svo fyrsta Fest skólans. Komu allir með mat sem var settur á hlaðborð. Mikið af pastaréttum og brauði og ostum. Ég fékk það verkefni að koma með salat. Sem ég og gerði. Kál með gúrkum, furuhnetum og bláberjum, þannig að litasamsetningin var að mínu mati mjög falleg ;) ætlaði að setja vínber í staðin fyrir bláberin (eins og mamma gerir) en vínberin sem ég átti voru ekki jafn girnileg og ég hélt í fyrstu, en það voru hinsvegar bláberin.
Annars var þetta ágætis partý. Soldið mikið “ég þekki ykkur voða lítið” stemmning hjá öllum. En allir tilbúnir í það að kynnast og hafa gaman. Eftir matin var farið í leiki og svo var bara almennt mingl í gangi. Hélt mig að mestu leyti á borðinu þar sem voru drykkjuleikir. Nokkuð alþjóðlegt tungumál ;) Þar voru allskonar nafnaleikir, klappleikir og fleira svoleiðis í gangi. Upp úr tíu fór svo að þynnast í hópnum. Var þá búin að tala um það við Ebbu að hittast seinni partinn þannig að um hálftólf leytið fór ég til hennar.
Hún var stödd á mjög litlum kósý bar í Fredriksberg með gömlum vin sem hún hafði ekki hitt í langan tíma. Danskur strákur sem heitir Tómas og hefur eithvað búið á Íslandi (náði ekki alveg sögunni í kringum það). Hann er víst músíkant og sagði okkur frá því að Universal music sé búin að vera í sambandi við hann um að fá hann til sín. Hann allvega var ekki feimin við það að koma fram vegna þess að um leið og píanóleikarinn á barnum hætti að spila bað Tómas um að fá að prófa og sat svo þar og spilaði og söng helling af lögum. Á meðan vorum við Ebba að skemmta okkur við að spjalla og dansa við fastakúnnana á staðnum. Allt hommar og/eða klæðskiptingar á aldrinum 50-70 ára. Eignuðumst fullt af góðum vinum ;)
Tómas vildi svo sýna okkur annan stað þar sem vinir hans áttu að vera. Einhver reif staður í Ködbyen eða The Meat District of Copenhagen (þetta er svo mikil stórborg ;) bara næstum eins og New York). En þar sem klukkan var eithvað yfir þrjú og danir djamma ekki eins og íslendingar þá var þessi harði reif staður (þokuvélar og laser-show og alles) tómur þegar við mættum, fyrir utan þrjár hræður inni á dansgólfinu og lítin hóp af fólki fyrir utan staðinn. Ákváðum þá að kíka á íslenska barinn Jolene sem var ekki langt frá. Eftir bið í röð þar sem maður kannaðist við annaðhvert andlit og einn rúnt inni á staðnum ákváðum við að fara heim. Staðurinn var fullur af ’86 módels krökkum úr Hagaskóla, fólk sem var í “kúl” gengjum þá og leit greinilega ennþá þannig á sig. Ekkert svigrúm þar inni til að vera örðuvísi. Fílaði gömlu hommana betur ;)
Annars bara mjög gott kvöld.
Leysti svo líka úr fararskjóta vandræðum okkar Áslaugar :D

En jæja, búið að vera rigning í allan dag þannig að ég hef að mestu haldið mig inni.
Kettirnir voru að fara áðan. Þau komu hérna og sóttu þá. Allir voða ánægðir að sjá hvert annað.
Þannig að núna er íbúðin hálftómleg. Bara ég og rotturnar. En annars þá kemur Áslaug á morgun. Það verður soldið gott : )

Allavega, kveð í bili

xoxo
Arna Dögg

19 ágúst 2008

...

Fullt búið að gerast ☺

Fyrsti dagurinn í skólanum var nokkuð skemmtilegur! Byrjað var á almennri kynningu á skólanum (sem ég held að ég hafi skilið…) og svo talaði skólastjórinn helling um hvernig stemmningin í skólanum ætti að vera og eithvað svoleiðis (skildi ekki mikið af því…) . Eftir það var okkur skipt í hópa og hver hópur fékk ákveðna byggingu í nágreninu og 250 dkr og átti svo að fara og kaupa í köku sem átti að líta út eins og byggingin. Soldið fyndnar reddingar sem voru þarna.
Það fyrsta sem mér datt í hug þegar talað var um köku í laginu eins og bygging, var að búa til mót úr álpappír og baka köku í því, en þar hugsum við Íslendingar og Danir ekki eins. Danska aðferðin er náttla að búa til Lagkage sem er beisiklí mjög þunnur kökubotn með helling af sultu, rjóma, kremi og ávöxtum staflað upp og svo kanski marsipan flatt út og sett utan um staflan. Síðan til að búa til glugga, súlur eða einhverjar áferðir þá var mismunandi nammi hlaðið utan á eða klístrað saman með marsipani. Þannig að byggingarnar enduðu með að líta út eins og lítil nammifjöll. Og svo var þessu öllu gúlpað niður eftir að búið var að dást að þessu og kjósa það flottasta.
Í dag var svo fyrsti alvöru dagurinn ef svo má segja. Í minni deild erum við sex krakkar og tveir kennarar. Hópurinn virkar mjög vel á mig... miðað við það sem ég skil ;)
Konukennarinn (svíi sem ég kann ekki að skrifa nafnið á) er húsgagnahönnuður og hún sá um fyrir hádegi. Vorum að búa til pennahaldara úr plasti. Og svo eftir hádegi fórum við með kallkennaranum (arkitekt og dani sem ég náði ekki hvað heitir) niðrí bæ þar sem hann sýndi okkur búð með fullt af arkitekta bókum og blöðum ásamt stórum lager af teikniáhöldum og mismunandi pappír í öllum þykktum og stærðum. Einnig skoðuðum við nokkrar byggingar í nágreninu.
Í vettvangsferðinni hélt ég oft að ég væri þvílíkt að skilja dönskuna hans, en þá sagði hann mér í stuttu máli á ensku hvað hann hefði verið að segja og komst ég þá að því að ég var alveg að misskilja hann... vonandi kemur þetta ;)

En svo er að segja frá því að við erum komnar með íbúð!
Pínkulítil ris íbúð á frábærum stað (Fredriksvej 17 í Fredriksberg, gatan er við hliðiná dýragarðinum). Tvö herbergi, eldhús og klósett á ekki mikinn pening.
Hún er soldið fyndin vegna þess að baðherbergið er eins og kústaskápur, þar sem er bara pláss fyrir klósett og vask. Þannig að sturtan er inni í öðru herberginu! Verð að taka mynd af þessu þegar við flytjum inn...
Þannig að við getum flutt þangað inn þann 31 ágúst og verðum með hana til 1 janúar.
Nú geta allir farið að undirbúa heimsóknir til okkar, tökum við pöntunum um gólfsvefnpláss í gegnum sms og e-mail, fyrstur pantar fyrstur fær ;)

En allavega, dettur ekki meira í hug til að segja frá

xoxo
Arna Dögg

17 ágúst 2008

Afmæli þú átt í dag, út af því við syngjum lag...

Jæja, þá er bið vikan á enda og skólinn að byrja í fyrramálið. Hlakka frekar mikið til að hitta hópinn, kennarana og vita betur hvað það er nákvæmlega sem ég er að fara að gera...

Helgin er búin að vera góð, búin að borða lasagne þrjú kvöld í röð :P Elduðum svo mikið af því á föstudaginn að það er búið að endast mér alla helgina. Fór svo með Ebbu og Indriði í afmæli til “einu dönsku vinkonu” Ebbu, hennar Laetitu.
Þar sem þetta var fyrsta danska afmælið sem nokkurt okkar hefur farið í vorum við soldið spennt að vita hvernig það væri. Hvort að fólk mætir með drykki sjálft, hvort að það eru einhverjar hefðir eða hvað... fíluðum okkur eins og við værum að heimsækja áður ókunnan frumbyggjahóp djúpt í frumskógum S-Ameríku. Urðum næstum fyrir vonbrigðum þegar þetta reyndist næstum allveg eins og íslenskt afmæli.... fyrir utan það náttla að þau töluðu öll dönsku... Var hin besta skemmtun. Reyndi mikið á dönsku hæfileikana, því ensku kunnátta þeirra var annaðhvort ekki góð fyrir eða að hún hvarf með áfengisdrykkju. Gaman líka að þessu danska-tempói. Fólk var ekki að drífa sig að skemmta sér sem mest í partíinu áður en það hleypur niðrí bæ. Fólk bara sat (eða stóð) á spjalli, hlustandi á skemmtilega tónlist (80’s þema í gangi) og svo þegar klukkan var orðin margt þá hélt fólk bara heim á leið. Get alveg vanist þessu...

En allavega, skóli í fyrramálið...

xoxo
Arna Dögg