Seinnni partur þessarar skólaviku fór í það að hanna og svo búa til loftljós úr pappír og þunnum bambus prikum sem voru svo hengd upp í matsalnum. Miðvikudeginum eyddum við í að gera skissur og módel, minnst 5 mismunandi stykki. Á fimmtudaginn var gegnumgangur á módelunum og svo eitt valið til þess að gera í raunstærð. Og svo í gær kláruðum við að búa þau til og hengdum svo upp og skoðuðum og ræddum.
Tók rosalegan tíma að gera þetta og við vorum nokkuð mörg sem unnum framm eftir á fimmtudeginum til þess að eiga séns í að klára á föstudeginum. Soldið erfitt að lýsa því hvernig mitt er en það minnir á litla borg á hvolfi. Þar sem ljósið kemur út úr stærsta háhýsinu og svo eru aðrir minni kassar í kring. Tengdi það líka soldið við loftskreytingu sem er fyrir í matsalnum þannig að það virkar eins og það sé að vaxa út úr því... veit ekki hvort þetta meikar sens ;) Ætla annars að taka myndir af þessu í næstu viku. Veit að mamma vill fá að sjá svoleiðis ;)
Um kvöldið var svo fyrsta Fest skólans. Komu allir með mat sem var settur á hlaðborð. Mikið af pastaréttum og brauði og ostum. Ég fékk það verkefni að koma með salat. Sem ég og gerði. Kál með gúrkum, furuhnetum og bláberjum, þannig að litasamsetningin var að mínu mati mjög falleg ;) ætlaði að setja vínber í staðin fyrir bláberin (eins og mamma gerir) en vínberin sem ég átti voru ekki jafn girnileg og ég hélt í fyrstu, en það voru hinsvegar bláberin.
Annars var þetta ágætis partý. Soldið mikið “ég þekki ykkur voða lítið” stemmning hjá öllum. En allir tilbúnir í það að kynnast og hafa gaman. Eftir matin var farið í leiki og svo var bara almennt mingl í gangi. Hélt mig að mestu leyti á borðinu þar sem voru drykkjuleikir. Nokkuð alþjóðlegt tungumál ;) Þar voru allskonar nafnaleikir, klappleikir og fleira svoleiðis í gangi. Upp úr tíu fór svo að þynnast í hópnum. Var þá búin að tala um það við Ebbu að hittast seinni partinn þannig að um hálftólf leytið fór ég til hennar.
Hún var stödd á mjög litlum kósý bar í Fredriksberg með gömlum vin sem hún hafði ekki hitt í langan tíma. Danskur strákur sem heitir Tómas og hefur eithvað búið á Íslandi (náði ekki alveg sögunni í kringum það). Hann er víst músíkant og sagði okkur frá því að Universal music sé búin að vera í sambandi við hann um að fá hann til sín. Hann allvega var ekki feimin við það að koma fram vegna þess að um leið og píanóleikarinn á barnum hætti að spila bað Tómas um að fá að prófa og sat svo þar og spilaði og söng helling af lögum. Á meðan vorum við Ebba að skemmta okkur við að spjalla og dansa við fastakúnnana á staðnum. Allt hommar og/eða klæðskiptingar á aldrinum 50-70 ára. Eignuðumst fullt af góðum vinum ;)
Tómas vildi svo sýna okkur annan stað þar sem vinir hans áttu að vera. Einhver reif staður í Ködbyen eða The Meat District of Copenhagen (þetta er svo mikil stórborg ;) bara næstum eins og New York). En þar sem klukkan var eithvað yfir þrjú og danir djamma ekki eins og íslendingar þá var þessi harði reif staður (þokuvélar og laser-show og alles) tómur þegar við mættum, fyrir utan þrjár hræður inni á dansgólfinu og lítin hóp af fólki fyrir utan staðinn. Ákváðum þá að kíka á íslenska barinn Jolene sem var ekki langt frá. Eftir bið í röð þar sem maður kannaðist við annaðhvert andlit og einn rúnt inni á staðnum ákváðum við að fara heim. Staðurinn var fullur af ’86 módels krökkum úr Hagaskóla, fólk sem var í “kúl” gengjum þá og leit greinilega ennþá þannig á sig. Ekkert svigrúm þar inni til að vera örðuvísi. Fílaði gömlu hommana betur ;)
Annars bara mjög gott kvöld.
Leysti svo líka úr fararskjóta vandræðum okkar Áslaugar :D
En jæja, búið að vera rigning í allan dag þannig að ég hef að mestu haldið mig inni.
Kettirnir voru að fara áðan. Þau komu hérna og sóttu þá. Allir voða ánægðir að sjá hvert annað.
Þannig að núna er íbúðin hálftómleg. Bara ég og rotturnar. En annars þá kemur Áslaug á morgun. Það verður soldið gott : )
Allavega, kveð í bili
xoxo
Arna Dögg
23 ágúst 2008
I want to ride my bicycle, I want to ride my bike...
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
5 ummæli:
hæ sæta.. Þetta hljómar alveg ótrúlega vel hjá þér.. Þú verður að vera dugleg að setja inn myndir af verkefnunum þínum..mig langar nefnilega að sjá. :D
mig líka!
Veit að ég er bara nýkomin til íslands en samt... ÖFUND!!
Gaman hvað þið eruð duglegar að láta vita af ykkur :D
ég vil líka fá að sjá myndir. af verkunum, íbúðinni og hjólinu.
kv
pabbi (Örnu Döggvar)
Shit hvað ég er lengi að lesa, þetta tók mig svona 10 mín hahaha! En já, stuð, og til hamingju með "nýju"
hjólin. Hver sótti kettina? :S
Takk fyrir það!
Eigendurnir sóttu kettina.
Eigendurnir hafa nefnilega verið á Íslandi í allt sumar að vinna :)
Skrifa ummæli