...þetta er nú meiri sora munnirinn á þessum kennurum.
Eins og Arna var búin að nefna þá vorum við í kroppateikningu í vikunni sem var mjög skemmtilegt og krefjandi.
Mér finnst ég loksins vera að gera eitthvað sem ég nýt alveg í botn að gera. Er að læra að gera tískuteikningar, alls konar mismunandi snið, vinnuteikningar og teikningar sem eiga að vera lesanlegar fyrir hvern þann sem ætlar að sauma flíkurnar. Ekki má heldur gleyma því að við lærðum líka í dag hvernig eigi að gera snið í illustrator forritinu sem Finnur bróðir reddaði mér einmitt áður en ég fór. Takk fyrir það Finnur, nú get ég nördast aðeins utan skólans af því að það verður víst ekki mikið farið í þetta í skólanum, bara rétt grunninn.
Var að borga skólagjöldin núna rétt áðan og af því að ég bý, enn sem komið er, í Kaupmannahafnar kommúnu, þá þarf ég 'bara' að borga skólagjöldin sem eru gefin upp á heimasíðunni. Núna kemur stórt en. EN af því að við erum að flyta til Fredriksberg þá gætum við þurft að borga nokkra DANSKA þúsundkalla í viðbót. Klöppum fyrir því!
Þannig að planið er að skýla okkur á bak við þá 'staðreynd' að við 'vissum' ekki betur, við bjuggum jú í kaupmannahafnarkommúnu þegar við borguðum gjöldin og tæknilega séð verðum við áfram skráðar á gamla heimilisfangið þangað til við ákveðum annað.
Hljómar þetta ekki eins og nægilega sannfærandi rök?
Mér finnst það (ekki).
Hver getur reddað mér vinnu í Kaupmannahöfn þar sem uppáhalds setningarnar mínar eru leyfðar:
Kan du tale lidt langsamer?
Undskyld, jeg kan ikke forstaa hvad du siger?
Jæja, vindsængin kallar.
Góða nótt
-Áslaug
29 ágúst 2008
Kroppateikningin þín er pissufín og skítagóð...
27 ágúst 2008
Oh, crystal ball, crystal ball, save us all, tell me life is beautiful...
Ég veit ekki hvort að fólk hefur tekið eftir því en við ákváðum að vera með smá þema í öllum bloggunum okkar. Sem sagt að láta öll blogg heita eftir einhverjum laga texta. Stundum á það við eftir farandi blogg og stundum (eins og í þessu tilfelli) á það ekkert skilt við bloggið sjálft, bara eithvað sem maður er með á heilanum þá stundina.
Allavega ... ;)
Seinustu daga höfum við Áslaug verið saman á teikninámskeiði, eða deildirnar okkar. Erum búnar að sitja og teikna eins og brjálæðingar nakta stelpu á okkar aldri. Var soldið skrítið fyrst en venst furðu fljótt. Hún er líka ótrúlega frökk og "straight forward" spjallaði helling við okkur í bekknum í hléum. Hún hefur semsagt verið að vinna við þetta í soldin tíma. Byrjaði á "nude photographic modeling" sem maður getur alveg spurt sig hvað þýði... ;)
Gamli meðleigjandin hennar Ebbu, hún Sara, kom svo í gær þannig að við þurftum að fara úr herberginu hennar. Keyptum okkur geðveika vindsæng til þess að sofa á núna næstu kvöld, sem er bara eins og uppblásanlegt rúm. Tvöfalt á breiddina og hæðina, sjálf-uppblásanleg og verður reddí fyrir þá sem kíkja í heimsókn! ...það er að segja ef hún passar inn í litlu íbúðina :D
Seinni part dagsins í dag höfum við svo verið að hjálpa Ebbu, Indriða og Söru að gera íbúðina reddí til afhendingar. Leigusalinn kemur á föstudaginn að skoða og þá má ekki sjást neitt sem hann getur kvartað yfir svo að þau fái allt deposit-ið sitt til baka. Þannig að við erum búin að vera að þrífa Hvern krók og kima og mála þá veggi sem eru með einhverja bletti sem nást ekki af með tusku.
Fundum svo (týpískt, rétt áður en við förum héðan) ólæst net frammi í stigagangi. Þannig að ég sit hérna í dyragættinni á íbúðinni að stela neti og vona að eigandinn rölti ekki framm hjá og átti sig á mistökum sínum...
xoxo
Arna Dögg