19 nóvember 2008

Einu sinni átti ég...

...godan kraftgalla!


Í gær kvøldi barst talid ad gømlu godu kraftgøllunum sem madur klæddist thegar madur var krakki.
Thetta voru godir timar, madur var krakka og var kruttlegur i snjogalla!

Su tid er lidin!

Nuna tharf madur bara ad drepast ur kulda til ad halda andliti og virdingu.

Thad er ekkert grin hvad thad er kalt thessa dagana hja okkur herna i Kaupmannahøfn. Ad vakna og stiga nidur a iskalt golfid er ekki beint øfundvert skal eg segja ykkur. Gluggarnir eru illa einangradir thannig ad thad blæs svolitid i gegnum rifur.
Thad er lika virkilega pirrandi thegar danirnir segja: Biddu, ertu ekki fra Islandi, ther a ekki ad verda kalt!

Eg held ad thad se bara spurning um ad redda ser kitti og vera ekki ad thessu væli.

Thessa dagana er ad byrja lokaskorpan hja minni linu. Eftir misheppnadar røkrædur a dønsku akvad eg ad gera eins og mer var sagt, teikna nyja flik thvi thessi sem eg ætladi ad sauma sem lokastykkid mitt er vist of flokin og eg gæti aldrei nad thvi a 4 vikum, eg endur tek 4 VIKUM! Eg er ekki sammala thvi en eg kemst ekki upp med ad stelast til ad gera hana.
Sma mont: Kennarinn sagdi ad thetta stykki sem eg hefdi teiknad væri super flott og virkilega ahugavert, en thetta væri eitthvad sem ætti frekar vid sem lokastykki fra Designskolerne en Højskolen Vera.

Nidurstadan er tha sem sagt su ad gera nokkurskonar jakka, semi kapu.
Thad verdur spennandi ad sja hvernig hann/hun kemur ut thvi nuna tharf eg ad læra ad prjona munstur eins og er i lopapeysum vegna thess ad thannig er ju teikningin min og adal konseptid i hugmyndin (eg kom mer i thessi vandrædi sjalf, eg veit thad).
Thetta er sko askorun i lagi. Allar uppskriftir a dønsku og eg kann ekki einu sinni ad lesa ur uppskriftunum a islensku!
Thetta er skolabokardæmi um hvernig eg reyni alltaf ad flækja hlutina fyrir mer. En eg slæ tho tvær flugur i einu høggi, læri danskan prjonaordaforda og ad prjona eftir uppskriftum :) Eg lærdi ad hekla a dønsku i sidustu viku thannig ad eg trui ekki ødru en thetta takist :)

Vid eigum von a sidasta gestinum okkar a morgun, mømmu hennar Ørnu. Thad verdur agætt ad fa svona eitt stykki mømmu inn a heimilid til tilbreytingar. Veit ekki hvernig thad a ad hafa ahrif en thad er bara eitthvad vid thennan mømmu titil sem hun er svo heppin ad bera.

Mig langadi ad thakka øllum fjølskyldumedlimum minum fyrir ad vera svona frabær i ad bjarga tølvunni minni og øllum gøgnunum minum. Eg er alveg endalaust thakklat!

(Fyrir tha sem ekki vita tha do hardi diskurinn. Nuna er tølvan a leidinni til min aftur med mømmu hennar ørnu, stutfull af øllu sem fyllti hana a gamla hardadisknum. God sem ny (vonandi))


Hlakka mikid til ad sja alla um jólin :)


Spurning hvort einhver geti reddad mer vinnu....?

...annars fer eg bara aftur hingad ut, kann svo vel vid mig :)



Bless i bili,

07 nóvember 2008

17 október 2008

Time is on my side...

Bara ad láta vita af okkur...

Anna Kara og Edda voru hjá okkur seinustu helgi. Soldid notalegt ad fá bita úr fjølskyldunni í heimsókn.
Og núna eftir ad tær eru farnar finnst okkur eins og íbúdin hafi stækkad um meira en helming.

Tessa vikuna er helmingur skólans búin ad vera i haustfríi. Tad er, Áslaugar deild og ljósmyndadeildin hafa verid í haustfríi vegna tess ad tau byrjudu í skólanum á áætludum tíma. En mín deild og málardeildin byrjudum viku seinna og var fríid tekid í stadinn. Høfum vid haft skólann útaf fyrir okkur sem er mjøg kósy.
Tessa vikuna var verkefnid mitt ad hanna klukku úr steypu og úrverki sem vid fengum í tiger. Soldid gaman ;)
Áslaug hefur verid í tví ad koma í skólann og sauma. Fær ad hafa saumastofuna alveg útaf fyrir sig sem er ædi! Ég keypti mér líka smá efni og hef verid ad dunda mér smá med henni eftir skóla, gerdi bol og er byrjud á pilsi.
Høfum svo eytt kvøldunum frá tví ad Anna Kara og Edda fóru í ad umbreyta íbúdinni okkar tannig nú geta fleiri setid saman í stofunni okkar og ad breyta smá hárgreidslunum okkar. Ég litadi hárid á hnni Áslaugu dekkra og hún klippti á mig topp. Heppnadist bara mjøg vel ad mínu mati.
Spurning um ad gera buisness úr tessu; Tøkum ad okkur ad breyta útliti fólks, allt frá hári til húsgagna....

Er svo farin ad hlakka til gestabombunar sem byrjar eftir minna en tvær vikur!
Thora Bjørg og Manuel verda hjá okkur 29 okt-2 nóv. Tá koma Dagny, Gudrún og Arndís og verda til 6 nóv. Og tá kemur Thora Soffía og verdur til 10 nóv.
Semsagt stanslaus samvera med gódu fólki!

knús og kossar til allra

Arna Døgg

12 október 2008

Thann dag, er landid hvita vard frjalst!

Sa dagur er vist bara farinn ut um thufur nuna, Russarnir eru bunir ad kaupa landid.

Fretti lika ad Island væri komid a e-bay! Bjodid i thad her


Sæl ad sinni.

05 október 2008

Shake it, shake it, shake it like a poloroid picture!

Nokkrar myndir til gamans...



Berlínarmúrinn



Arna í skólanum


Þvílík ást á heimilinu (þessi mynd er sviðsett)


Samt eiginlega bara stuð!

02 október 2008

...leggur ekkert inn! Tekur bara ut...

Veit nu ekki alveg med thad, annad segir bankabokin min!

Hallærid a Islandi hefur borist hingad til okkar i formi rigningar, kulda og færri danskra krona i buddunni. Gott ad eiga goda hufu, vettlinga og litla buddu. Tha litur thetta allt mun betur ut.

Thratt fyrir faranlegt hallæri herna hja okkur stollum tha reynum vid ad lita a bjortu hlidina, sem er thessi frabæri skoli.

Eg er buin ad læra svo mikid. I dag fekk eg skemaid fyrir seinni hluta annarinnar.
Thegar kennarinn las upp allt sem eg og minn hopur eru ad fara ad gera tha fekk eg alveg sæluhroll. Thetta verdur svo skemmtilegt! Til dæmis erum vid nuna ad gera svokallada promo tipu af pilsunum okkar sem verda synd a midannarsyningunni i næstu viku (promo tipa er svona nokkurskonar fyrsta eintak, eda prufu eintak af thvi sem madur ætlar ad gera). Myndir koma sidar.

Seinna gerum vid svo stimpla og prentum a toskur, boli eda adrar flikur. Virkilega spennandi :)
Einnig eigum vid ad gera lokaverkefni sem vid faum nokkurn veginn frjalsar hendu og hugsun med. Megum gera hvad sem okkur dettur i hug, svo lengi sem thad tengist tisku og klædaburdi.


Ekki ma sidan gleyma verefninu sem deildirnar okkar Ørnu eru ad fara ad vinna saman i. Liggur reyndar svolitid mikil dulud yfir thvi, kennararnir vilja ekkert segja.
A samt sem adur bara von a ad thetta verdi snilldar verkefni og thvilikt stud.


En tha kved eg ad sinni.


Farid nu varlega i hallærinu bornin god og gleymid ekki ad taka LYSI

29 september 2008

Oft spurði ég mömmu er ung ég var, sér einhver fyrir hvað verða skal…

Ok, ég hef verið að forðast það að segja frá Berlínar ferðinni hérna vegna þess að við gerðum svo mikið. Ég punktaði niður helstu atriðin í minnisbókina mína, svona svo ég gleymdi engu, og svo ætlaði ég að skrifa helling hérna í bloggið.... en er ekki alveg að nenna þvi ;)
Þannig að hérna eru bara punktarnir:

Mánudagur 15. Sept
-Mæting kl 6 am rúta-skip-rúta-berlín
-Pegasus hostel 5. Hæð í herbergi með Mettu, Lisbeth og Önnu
-Múrinn –mikið veggjakrot
-Sushi með hinum og þessum úr mínum og Áslaugar hópum
-Bjór með held ég öllum nemendunum
-Rölt heim á hostel –sáum alvöru pönkara, eggjahvítur, pissa úti, sikkersnælur í eyrum og allt

Þriðjudagur 16. Sept
-Kaldur morgun
-Skóla kynning –fannst ekki spennandi persónulega... allt nám á þýsku!
-Seinni part dags skiptust deildirnar, áslaug fór með stelpunum að skoða hönnunarbúðir og ég fór með minni í skoðunarferð:
-Við sáum Brandenburgarhliðið, Holocaust Monument og Gay Monument, fórum upp í útsýniskúplin yfir Reichstag byggingunni og fórum svo á safnið Haus der Kulturen der Weit
-Um kvöldið borðaði hver deild saman
-Hittumst seinna á stórum tango stað í húsí frá sirka 1920 sem hafði varla verið breytt frá því eftir stríð. Pörin á gólfinu tóku dansinn greinilega þvílíkt alvarlega : )

Miðvikudagur 17. Sept
-Safn í gamalli lestarstöð Hamburger Bahnhof
-Frí eftir hádegi, ég ákvað að fara í ferð sem kennarinn minn var að bjóða upp á þar sem við ætluðum að fara að skoða minjar frá múrnum og stríðinu. Vorum lítill hópur bara sex nemendur plús kennarinn.
-Sáum þversnið af múrnum og The death strip, Minnisvarða um kirkju sem var rifin vegna þess að hún var fyrir múrnum, Mauerpark að róla okkur í þvílíkt löngum rólum með rosalegu útsýni, gamla yfirgefna lestarteina í miðri borginni (nokkuð viss um að við máttum ekki vera þarna þurftum að smeigja okkur á milli og undir nokkurra girðinga til að komast þangað :P ) , hlupum upp á Kreuzberg að sjá útsýnið og svo enduðum við á gömlum flugvelli sem Mogens (kennari) sagði vera besta dæmi um fasista arkitektur sem hann vissi um.
-Enduðum daginn á að vera með sameiginlegan kvöldmat uppi á herbergi við Áslaug og stelpurnar í hópnum mínum.

Fimmtudagur 18. Sept
-Langur göngutúr, allur skólinn, að skoða merkar byggingar. Fór svo með Áslaugu og bekledningsdesign stelpunum á Bauhaus safnið.
-Um kvöldið var sameiginlegur kvöldmatur fyrir allan hópinn.
-Enduðum mörg kvöldin á bjór og foosball keppni

Föstudagur 19. Sept
-Við Áslaug fórum í Modulor, búð sem hefur Allt! Sem hægt væri að ímynda sér til módelgerðar og ýmislegrar handavinnu (það eina sem ég keypti í allri ferðinni var í þessari búð, ein mappa sem ég ætla að nota sem portfólíómöppu)
-Lagt af stað heim kl 2 frá hostelinu, tók allan daginn, vorum að koma í íbúðina rétt fyrir miðnætti

Erum báðar búnar að setja inn nokkrar myndir á facebook ef þið viljið sjá smá brot af ferðinni ;)

Annars þá vorum við verið í kroppateikning mest alla vikuna, eða croquis teikningu. Vorum að æfa hraða í skissuteikningu og því að teikna rétt hlutföll og svoleiðis. Módelin okkar þessa vikuna hafa verið bútuð hippa kona á fertugsaldri og yndislega hommalegur og vöðvastæltur svartur maður á fimmtugsaldri. Soldið skemmtilegt að sjá hvernig hann nær að gera venjulegustu stellingar afskaplega kvennlegar og hvernig hann glottir oft til strákana þriggja í bekknum þegar að han stillir sér kviknakinn upp fyrir framan okkur ;)
Síðan á föstudaginn þá var ég á safnarúnti um borgina með hópnum mínum og Áslaug var að sýna modephoto verkefnið sitt.
Fengum svo Ebbu og Indriða í mat til okkar á laugardagskvöldið. Elduðum dýrindis mat (smá klúður með þýska eftirréttinn ;) ) og svo sátum við yfir spilum (kani) og spjalli fam eftir kvöldi. Voðalega fullorðins eithvað : )

En jæja, nóg í bili

xoxo

Arna Dögg

16 september 2008

THYSKALAND

Eftir taepa 8 tima af ogedisferdalagi vorum vid komnar a afangastad. Eg var buin ad gleyma hvad thyska er leidinlegt tungumal, sorry mamma!

Var svona ad gaela vid ad tala thysku en annad hvert ord er danska. Thetta er ekkert sma ruglandi!

En eg er ad sjalfsogdu komin med eitthvad ogedis kvef, aftur ja!

EG ER AD TAKA LYSID MAMMA!

Thad er bara svo rakt i DK, eg er alveg sannfaerd um ad thad se svarid vid thessu.



AEtla ad fara ad sofa til thess ad eg geti tekid thatt i dans namskeidinu i kvold.


Auf Wiedersehen!

Tschüss,

Aslaug

09 september 2008

First we take Manhattan then we take Berlin...

Ok, hef reyndar aldrei farid til Manhattan en vid erum samt a leidinni til Berlin med skolanum a manudagin næsta. Hlakka mikid til!

Vid høfum verid netlausar heima seinustu viku eda svo (finnum ekkert net til ad stela i næsta nagreni) tannig ad vid høfum ekki verid duglegar ad setja neitt herna inn. En ok, svona var sirka seinasta vika:

-Eg var i stolamodelgerd næstum alla vikuna. Leid eins og eg væri framleidsluvel, var bara i tvi ad bua til endalaust mikid af tiny stolum.
-A fimmtudaginn komu mamma, systir og systurdóttir Áslaugar til Køben. Tær komu aldeilis færandi hendi, bædi fra minni fjølsk og náttla Áslaugar. Og vilja eg takka øllum fyrir! Eigum nuna nammi sem endist okkur øruglega fram ad jolum ;)
-Mamma Áslaugar var med okkur i fædi alla helgina, og vid átum næstum á okkur gat af rosa gódum mat! Fórum bædi a Jensens (fyrsta skipti sem eg hef farid tangad (og tær mædgur voru allar mjøg hissa tegar eg sagdi teim tad)) og a Mama Rosa.
-Kíktum á pínu pøbbarølt med stelpunum ur beklædningsdesign a føstudagskvøldid. Tær redu ferdinnni og foru med okkur a øruglega ta reykmettudustu stadi sem eg hef a ævinni farid. Var farid ad svida i halsin og augun eftir nokkra klst dvøl. Er mjøg fegin reykingabanninu heima!
- A laugardaginn for Aslaug ad horfa a badminton keppni sem hopurinn hennar ad heiman var ad keppa i. Eg gerdi heidarlega tilraun til ad trifa klosettid hja okkur. Greyid klosetid litur ut fyrir ad hafa verid vanrækt seinustu aratugi og nu er fastur grænleitur litur i postulininu... voda gedslegt... kann einhver god rad til ad fjarlægja svoleidis? Allar abendingar vel tegnar.
- A sunnudaginn tokum vid sma turista rølt med ferdaløngunum og skodudum midbæinn og christianiu.

En jæja, buin ad sinna tilkynningaskyldunni ...ætla ad koma mer heim

xoxo
Arna Døgg

01 september 2008

Sweet home... (Alabama)



Hvað hugsar þú þegar þú heyrir orðið Transporter?


Ég hugsa, stóri rauði bíllinn hans pabba, eða einfaldlega bíll í stærri kantinum.

Náungarnir á fjórum sinnum þrjátíuogfimm leigubílastöðinni hugsa greinilega ekki það sama og ég!

Ég hringdi í þessar elskur og bað um bíl sem gæti flutt tvö hjól og sex töskur.
Ég hélt að þetta væri frekar simpelt og var frekar ánægð með þetta símtal.
Þegar leigubíllinn kom loksins, eftir 20 min. bið þá var þetta lítill fólksbíll með svona hjólastandi aftaná.

Samtalið var eitthvað á þessa leið

Leigubílstjóri: seks taske og to cykler, det er OK.
Hann labbaði upp að hrúgunni okkar og sá þá að ein taskan var kassi.
..også den der? pfff, nej! jeg ringer til stationen.
Við hugsuðum með okkur, vá frábært, hann ætlar að hringja, þvílíkur herramaður!

Hann fór og 20 min. seinna fórum við að undrast en þá birtist fyrir hornið annar bíll, alveg nákvæmlega sömu stærðar og meira að segja líka Benz.

Við vorum að spá í að snúa bara rössunum í hann og þykjast ekkert kannast við þetta en ákváðum að pirrast aðeins í honum.

Ég sagði: Vi har brug for en stor bil
Leigubílstjóri: hva'saa?
Ég: STOR BIL, TRANSPORTER! (Heill hellingur af svoleiðis leigubílum á Íslandi)
Leigubílstjóri: hva'saa?, en störere bil
... aaa, en station car!?!

!!!!! Fáviti!!!!!!

Leigubílstjóri: Ok, I skal ringe til stationen.

Hann fór og við hringdum, pöntuðum station bíl og okkur var sagt að það væri lengri bið eftir stórum bíl, 40 min. síðar kom stationbíllinn.

Þegar við vorum búnar að troða öllu í bílinn hjólaði Arna af stað og ég settist inn i bílinn og fékk þá þvílíkar skammir fyrir að hafa pantað tvo stationbíla þegar ég þurfti bara einn. HVAÐ? Ég sagði að aldrei. Við þrættum aðeins en síðan gaf ég honum 10 krónur í tips og hann var svo ánægður að þið gætuð ekki trúað því.



Þegar dótið var komið upp allar fimm hæðirnar vorum við líklega búnar að sjá fleiri kóngulær en um alla ævi okkur samanlagt. Arna opnaði klósetthurðina og þar blasti við eitt forlátt klósett og járnkeðja hangandi úr loftinu. Forvitninni svalaði ég með því að tosa í keðjuna og það sturtaðist niður, og upp úr okkur kom algjör geðveikishlátur.



Ekki má samt gleyma að nefna það að við fórum í IKEA í dag/kvöld.


Sorry Dagný, mér þykir leiðinlegt að segja það, ég varð fyrir miklum vonbrigðum. Þetta virkar eiginlega minna en á Íslandi og er ekki einu sinni jafn flott. Púh á IKEA, í Danmörku, þeas.



Mín fór nú samt beint í vörn og sagði að hinar IKEA búðirnar væru örugglega miklu flottari.

29 ágúst 2008

Kroppateikningin þín er pissufín og skítagóð...

...þetta er nú meiri sora munnirinn á þessum kennurum.

Eins og Arna var búin að nefna þá vorum við í kroppateikningu í vikunni sem var mjög skemmtilegt og krefjandi.



Mér finnst ég loksins vera að gera eitthvað sem ég nýt alveg í botn að gera. Er að læra að gera tískuteikningar, alls konar mismunandi snið, vinnuteikningar og teikningar sem eiga að vera lesanlegar fyrir hvern þann sem ætlar að sauma flíkurnar. Ekki má heldur gleyma því að við lærðum líka í dag hvernig eigi að gera snið í illustrator forritinu sem Finnur bróðir reddaði mér einmitt áður en ég fór. Takk fyrir það Finnur, nú get ég nördast aðeins utan skólans af því að það verður víst ekki mikið farið í þetta í skólanum, bara rétt grunninn.

Var að borga skólagjöldin núna rétt áðan og af því að ég bý, enn sem komið er, í Kaupmannahafnar kommúnu, þá þarf ég 'bara' að borga skólagjöldin sem eru gefin upp á heimasíðunni. Núna kemur stórt en. EN af því að við erum að flyta til Fredriksberg þá gætum við þurft að borga nokkra DANSKA þúsundkalla í viðbót. Klöppum fyrir því!
Þannig að planið er að skýla okkur á bak við þá 'staðreynd' að við 'vissum' ekki betur, við bjuggum jú í kaupmannahafnarkommúnu þegar við borguðum gjöldin og tæknilega séð verðum við áfram skráðar á gamla heimilisfangið þangað til við ákveðum annað.

Hljómar þetta ekki eins og nægilega sannfærandi rök?


Mér finnst það (ekki).


Hver getur reddað mér vinnu í Kaupmannahöfn þar sem uppáhalds setningarnar mínar eru leyfðar:

Kan du tale lidt langsamer?

Undskyld, jeg kan ikke forstaa hvad du siger?




Jæja, vindsængin kallar.


Góða nótt


-Áslaug

27 ágúst 2008

Oh, crystal ball, crystal ball, save us all, tell me life is beautiful...

Ég veit ekki hvort að fólk hefur tekið eftir því en við ákváðum að vera með smá þema í öllum bloggunum okkar. Sem sagt að láta öll blogg heita eftir einhverjum laga texta. Stundum á það við eftir farandi blogg og stundum (eins og í þessu tilfelli) á það ekkert skilt við bloggið sjálft, bara eithvað sem maður er með á heilanum þá stundina.

Allavega ... ;)

Seinustu daga höfum við Áslaug verið saman á teikninámskeiði, eða deildirnar okkar. Erum búnar að sitja og teikna eins og brjálæðingar nakta stelpu á okkar aldri. Var soldið skrítið fyrst en venst furðu fljótt. Hún er líka ótrúlega frökk og "straight forward" spjallaði helling við okkur í bekknum í hléum. Hún hefur semsagt verið að vinna við þetta í soldin tíma. Byrjaði á "nude photographic modeling" sem maður getur alveg spurt sig hvað þýði... ;)

Gamli meðleigjandin hennar Ebbu, hún Sara, kom svo í gær þannig að við þurftum að fara úr herberginu hennar. Keyptum okkur geðveika vindsæng til þess að sofa á núna næstu kvöld, sem er bara eins og uppblásanlegt rúm. Tvöfalt á breiddina og hæðina, sjálf-uppblásanleg og verður reddí fyrir þá sem kíkja í heimsókn! ...það er að segja ef hún passar inn í litlu íbúðina :D

Seinni part dagsins í dag höfum við svo verið að hjálpa Ebbu, Indriða og Söru að gera íbúðina reddí til afhendingar. Leigusalinn kemur á föstudaginn að skoða og þá má ekki sjást neitt sem hann getur kvartað yfir svo að þau fái allt deposit-ið sitt til baka. Þannig að við erum búin að vera að þrífa Hvern krók og kima og mála þá veggi sem eru með einhverja bletti sem nást ekki af með tusku.

Fundum svo (týpískt, rétt áður en við förum héðan) ólæst net frammi í stigagangi. Þannig að ég sit hérna í dyragættinni á íbúðinni að stela neti og vona að eigandinn rölti ekki framm hjá og átti sig á mistökum sínum...


xoxo
Arna Dögg

23 ágúst 2008

I want to ride my bicycle, I want to ride my bike...

Seinnni partur þessarar skólaviku fór í það að hanna og svo búa til loftljós úr pappír og þunnum bambus prikum sem voru svo hengd upp í matsalnum. Miðvikudeginum eyddum við í að gera skissur og módel, minnst 5 mismunandi stykki. Á fimmtudaginn var gegnumgangur á módelunum og svo eitt valið til þess að gera í raunstærð. Og svo í gær kláruðum við að búa þau til og hengdum svo upp og skoðuðum og ræddum.
Tók rosalegan tíma að gera þetta og við vorum nokkuð mörg sem unnum framm eftir á fimmtudeginum til þess að eiga séns í að klára á föstudeginum. Soldið erfitt að lýsa því hvernig mitt er en það minnir á litla borg á hvolfi. Þar sem ljósið kemur út úr stærsta háhýsinu og svo eru aðrir minni kassar í kring. Tengdi það líka soldið við loftskreytingu sem er fyrir í matsalnum þannig að það virkar eins og það sé að vaxa út úr því... veit ekki hvort þetta meikar sens ;) Ætla annars að taka myndir af þessu í næstu viku. Veit að mamma vill fá að sjá svoleiðis ;)
Um kvöldið var svo fyrsta Fest skólans. Komu allir með mat sem var settur á hlaðborð. Mikið af pastaréttum og brauði og ostum. Ég fékk það verkefni að koma með salat. Sem ég og gerði. Kál með gúrkum, furuhnetum og bláberjum, þannig að litasamsetningin var að mínu mati mjög falleg ;) ætlaði að setja vínber í staðin fyrir bláberin (eins og mamma gerir) en vínberin sem ég átti voru ekki jafn girnileg og ég hélt í fyrstu, en það voru hinsvegar bláberin.
Annars var þetta ágætis partý. Soldið mikið “ég þekki ykkur voða lítið” stemmning hjá öllum. En allir tilbúnir í það að kynnast og hafa gaman. Eftir matin var farið í leiki og svo var bara almennt mingl í gangi. Hélt mig að mestu leyti á borðinu þar sem voru drykkjuleikir. Nokkuð alþjóðlegt tungumál ;) Þar voru allskonar nafnaleikir, klappleikir og fleira svoleiðis í gangi. Upp úr tíu fór svo að þynnast í hópnum. Var þá búin að tala um það við Ebbu að hittast seinni partinn þannig að um hálftólf leytið fór ég til hennar.
Hún var stödd á mjög litlum kósý bar í Fredriksberg með gömlum vin sem hún hafði ekki hitt í langan tíma. Danskur strákur sem heitir Tómas og hefur eithvað búið á Íslandi (náði ekki alveg sögunni í kringum það). Hann er víst músíkant og sagði okkur frá því að Universal music sé búin að vera í sambandi við hann um að fá hann til sín. Hann allvega var ekki feimin við það að koma fram vegna þess að um leið og píanóleikarinn á barnum hætti að spila bað Tómas um að fá að prófa og sat svo þar og spilaði og söng helling af lögum. Á meðan vorum við Ebba að skemmta okkur við að spjalla og dansa við fastakúnnana á staðnum. Allt hommar og/eða klæðskiptingar á aldrinum 50-70 ára. Eignuðumst fullt af góðum vinum ;)
Tómas vildi svo sýna okkur annan stað þar sem vinir hans áttu að vera. Einhver reif staður í Ködbyen eða The Meat District of Copenhagen (þetta er svo mikil stórborg ;) bara næstum eins og New York). En þar sem klukkan var eithvað yfir þrjú og danir djamma ekki eins og íslendingar þá var þessi harði reif staður (þokuvélar og laser-show og alles) tómur þegar við mættum, fyrir utan þrjár hræður inni á dansgólfinu og lítin hóp af fólki fyrir utan staðinn. Ákváðum þá að kíka á íslenska barinn Jolene sem var ekki langt frá. Eftir bið í röð þar sem maður kannaðist við annaðhvert andlit og einn rúnt inni á staðnum ákváðum við að fara heim. Staðurinn var fullur af ’86 módels krökkum úr Hagaskóla, fólk sem var í “kúl” gengjum þá og leit greinilega ennþá þannig á sig. Ekkert svigrúm þar inni til að vera örðuvísi. Fílaði gömlu hommana betur ;)
Annars bara mjög gott kvöld.
Leysti svo líka úr fararskjóta vandræðum okkar Áslaugar :D

En jæja, búið að vera rigning í allan dag þannig að ég hef að mestu haldið mig inni.
Kettirnir voru að fara áðan. Þau komu hérna og sóttu þá. Allir voða ánægðir að sjá hvert annað.
Þannig að núna er íbúðin hálftómleg. Bara ég og rotturnar. En annars þá kemur Áslaug á morgun. Það verður soldið gott : )

Allavega, kveð í bili

xoxo
Arna Dögg

19 ágúst 2008

...

Fullt búið að gerast ☺

Fyrsti dagurinn í skólanum var nokkuð skemmtilegur! Byrjað var á almennri kynningu á skólanum (sem ég held að ég hafi skilið…) og svo talaði skólastjórinn helling um hvernig stemmningin í skólanum ætti að vera og eithvað svoleiðis (skildi ekki mikið af því…) . Eftir það var okkur skipt í hópa og hver hópur fékk ákveðna byggingu í nágreninu og 250 dkr og átti svo að fara og kaupa í köku sem átti að líta út eins og byggingin. Soldið fyndnar reddingar sem voru þarna.
Það fyrsta sem mér datt í hug þegar talað var um köku í laginu eins og bygging, var að búa til mót úr álpappír og baka köku í því, en þar hugsum við Íslendingar og Danir ekki eins. Danska aðferðin er náttla að búa til Lagkage sem er beisiklí mjög þunnur kökubotn með helling af sultu, rjóma, kremi og ávöxtum staflað upp og svo kanski marsipan flatt út og sett utan um staflan. Síðan til að búa til glugga, súlur eða einhverjar áferðir þá var mismunandi nammi hlaðið utan á eða klístrað saman með marsipani. Þannig að byggingarnar enduðu með að líta út eins og lítil nammifjöll. Og svo var þessu öllu gúlpað niður eftir að búið var að dást að þessu og kjósa það flottasta.
Í dag var svo fyrsti alvöru dagurinn ef svo má segja. Í minni deild erum við sex krakkar og tveir kennarar. Hópurinn virkar mjög vel á mig... miðað við það sem ég skil ;)
Konukennarinn (svíi sem ég kann ekki að skrifa nafnið á) er húsgagnahönnuður og hún sá um fyrir hádegi. Vorum að búa til pennahaldara úr plasti. Og svo eftir hádegi fórum við með kallkennaranum (arkitekt og dani sem ég náði ekki hvað heitir) niðrí bæ þar sem hann sýndi okkur búð með fullt af arkitekta bókum og blöðum ásamt stórum lager af teikniáhöldum og mismunandi pappír í öllum þykktum og stærðum. Einnig skoðuðum við nokkrar byggingar í nágreninu.
Í vettvangsferðinni hélt ég oft að ég væri þvílíkt að skilja dönskuna hans, en þá sagði hann mér í stuttu máli á ensku hvað hann hefði verið að segja og komst ég þá að því að ég var alveg að misskilja hann... vonandi kemur þetta ;)

En svo er að segja frá því að við erum komnar með íbúð!
Pínkulítil ris íbúð á frábærum stað (Fredriksvej 17 í Fredriksberg, gatan er við hliðiná dýragarðinum). Tvö herbergi, eldhús og klósett á ekki mikinn pening.
Hún er soldið fyndin vegna þess að baðherbergið er eins og kústaskápur, þar sem er bara pláss fyrir klósett og vask. Þannig að sturtan er inni í öðru herberginu! Verð að taka mynd af þessu þegar við flytjum inn...
Þannig að við getum flutt þangað inn þann 31 ágúst og verðum með hana til 1 janúar.
Nú geta allir farið að undirbúa heimsóknir til okkar, tökum við pöntunum um gólfsvefnpláss í gegnum sms og e-mail, fyrstur pantar fyrstur fær ;)

En allavega, dettur ekki meira í hug til að segja frá

xoxo
Arna Dögg

17 ágúst 2008

Afmæli þú átt í dag, út af því við syngjum lag...

Jæja, þá er bið vikan á enda og skólinn að byrja í fyrramálið. Hlakka frekar mikið til að hitta hópinn, kennarana og vita betur hvað það er nákvæmlega sem ég er að fara að gera...

Helgin er búin að vera góð, búin að borða lasagne þrjú kvöld í röð :P Elduðum svo mikið af því á föstudaginn að það er búið að endast mér alla helgina. Fór svo með Ebbu og Indriði í afmæli til “einu dönsku vinkonu” Ebbu, hennar Laetitu.
Þar sem þetta var fyrsta danska afmælið sem nokkurt okkar hefur farið í vorum við soldið spennt að vita hvernig það væri. Hvort að fólk mætir með drykki sjálft, hvort að það eru einhverjar hefðir eða hvað... fíluðum okkur eins og við værum að heimsækja áður ókunnan frumbyggjahóp djúpt í frumskógum S-Ameríku. Urðum næstum fyrir vonbrigðum þegar þetta reyndist næstum allveg eins og íslenskt afmæli.... fyrir utan það náttla að þau töluðu öll dönsku... Var hin besta skemmtun. Reyndi mikið á dönsku hæfileikana, því ensku kunnátta þeirra var annaðhvort ekki góð fyrir eða að hún hvarf með áfengisdrykkju. Gaman líka að þessu danska-tempói. Fólk var ekki að drífa sig að skemmta sér sem mest í partíinu áður en það hleypur niðrí bæ. Fólk bara sat (eða stóð) á spjalli, hlustandi á skemmtilega tónlist (80’s þema í gangi) og svo þegar klukkan var orðin margt þá hélt fólk bara heim á leið. Get alveg vanist þessu...

En allavega, skóli í fyrramálið...

xoxo
Arna Dögg

15 ágúst 2008

Hey KANÍNA....

...svefngalsi á leiðinni á Mc.D. og þetta lag kom uppí huga mér...




Heim í fyrramálið!

Vonandi finnur Arna hjól handa okkur á meðan ég er í burtu.

Mig langar í þetta hjól!

14 ágúst 2008

Mér finnst rigningin góð....

... en samt ekkert voðalega...

Erum komnar með dönsk símanúmer
25 82 52 57 - er ég (arna) og
25 82 52 58 - er Áslaug
...og svo náttla ef þið hringið frá Íslandi þá þurfið þið að bæta við 0045 fyrir framan.
Endilega verið óhrædd við að hringja ;)


Það er soldið skrítið að vera svona ein í útlöndum... eða... er náttúrulega ekki alveg ein. En þessa vikuna er Áslaug búin að vera í skólanum og ég hef þurft að hafa ofan af sjálfri mér.
Hef reynt að forðast það að hanga heima vegna þess að þar eru engin húsgögn og þrír kettir sem eru SÍ-mjálmandi (án gríns! þeir þagna ekki nema í svona klst á dag. Rétt á meðan að þeir eru að gúlpa ofan í sig matnum sínum og melta hann. Geta reynt soldið á taugarnar...).
Var búin að sjá fyrir mér að ég gæti bara legið úti í einum af görðum Kaupmannahafnar lesandi bækur og verið soldið menningarleg. En mér til mikillar ánægju hefur verið rigning upp á hvern einasta dag, þannig að öll menningar-garða-plön hafa ekki verið gerleg. Voða gaman. Þetta er ekki brjáluð rigning. Bara soldið íslensk að mörgu leyti. Það styttir alltaf upp inn á milli og göturnar þorna og svoleiðis en svo um leið og maður stígur fæti út fyrir dyr þá byrjar að dropa pínu... eða hellirigna. Er til dæmis rennandi blaut núna í fæturna og upp á mið læri eftir að hafa labbað til Steinars Atla í morgun (plataði hann í taka smá pakka með sér heim handa tilvonandi afmælisbarni (eða konu...)).

En jæja, sumir eru líklega soldið forvitnir að vita hvernig íbúða mál ganga hjá okkur...
Er að fara að kíkja á litla íbúð á mánudaginn og svo er ég í e-mail sambandi við tvo aðra aðila upp á að fá kanski að leigja herbergi af þeim... Vona að eithvað af þessu gangi eftir!

Annars er Áslaug að fara heim að vinna núna á laugardaginn og verður út vikuna. Ef einhver skemmtilegur er að fara að kíkja út til kóngsins þá endilega látið vita af ykkur ;)
Er samt að fara að byrja í skólanum þannig að ég verð ekki alveg aðgerðarlaus þessa vikuna sem hún er heima. Og svo er fyrsta Fest skólans á föstudaginn eftir að ég byrja. Hlakka soldið til þess ;)

Jæja bless í bili

xoxo
Arna Dögg

09 ágúst 2008

Ótrúlega fullorðins....

...alltaf að spá í því hvað allt kostar og finna út með hinum snúnustu reikningum hvernig hægt sé að spara. Þetta er víst kallast að fullorðnast og forðast það að vera á kúpunni. Veit ekki hvort mig langi til að vera fullorðin lengur!


Í dag er ég að gera persónulegt met. Ég er bara í rólegheitunum í kvöld og reyndar í gær líka, ótrúlegt. Önnur staðfesting á að maður sé að fullorðnast, eða hvað?

Eitt dæmi um kjarakaup:

Keyptum þetta alveg hreint frábæra múslí, í eins kílós pakkningu. Góð kaup? Já.
En eftir nokkra morgna með múslíi og jógúrti, safa og vínberjum þá fórum við að velta því fyrir okkur hversu lengi við myndum endast. Ákváðum að næst skyldum við kaupa Kellog's og mjólk.



Annað dæmi um kjarakaup:


Stór kassi sveppum. Getum notað þá á samlokur (kvöldmaturinn í kvöld), í pastarétt (kvöldmaturinn í gær), sveppir með kókinu... já, það er í alvörunni gott.


Og af því að við erum svo mikið að spara og svona skemmtilegt þá hugsum við aldrei neitt út fyrir þessar viðurkenndu máltíðir. Einu máltíðirnar sem eru á verslunarplaninu okkar eru morgunmatur, hádegismatur og kvöldmatur.





Rétt í þessu löbbuðu tveir krakkar að okkur hérna í þessu skemmtilega horni á Mcdonalds og horfðu á okkur og glottu út í annað. Kannski svolítið undarleg sjón, tvær ungar stelpur sem sitja við tölvur úti í horni og pikka eins og óðar séu til þess að nýta þennan klukkutíma sem þær fá frítt á veraldarvefnum í boði Mcdonalds.

Mig langaði mest að segja við þau: Hey ég er allavegana ekki berfætt í náttbuxum og að borða á mcdonalds klukkan 11 að kvöldi til!

Hefði pottþétt gert það hefði ég kunnað það...



10 min. til stefnu. Best að nýta tímann vel.


Bless í bili
Áslaug

08 ágúst 2008

McDonalds, McDonalds, Kentucky Fried Chicken og Pizza Hut

Bara svo að það sé á hreinu þá er það ekki á matseðlinum okkar. Titill þessa blogs á að syngjast!

Well... dagur 3 og við erum enn á lífi ;)

Erum að reyna að finna okkur gott símakerfi til að joina en það gengur svona upp og ofan. Voða mikið af ruglingslegum upplýsingum á netinu. Frítt þetta en borgar smá fyrir hitt... og samkvæmt Ebbu getur þetta hitt verið Mjög dýrt. Þannig að við ætlum bara að fara á næstu bensínstöð og segja bara úllen dúllen doff...

Copenhagen fashion week er í gangi núna. Ráðhústorgið er fullt af skinny models með eins hárgreiðslu. Soldið fyndið. Svo er run-way-show-ið sýnt á stórum skjá á torginu. Gaman að þessu :D

Annars er McDonalds að gera góða hluti, internetlega séð... eða allavegana þessi frábæri nágranni þeirra sem hefur gleymt að læsa netinu sínu. STUPID!!!.....


Næst komum við hingað klukkan 9 þegar opnar og byrjum að hala niður ólöglegum varning í stórum stíl. Gott að hafa tvær tölvur!!! :P


Bless í bili ;)

07 ágúst 2008

Komnar....

Jæja, þá erum við komnar til útlandsins. Erum í Valby í íbúðinni hennar Ebbu þar sem tveir af þremur köttum eru þeir frekustu sem ég hef hitt! En rotturnar eru ágætar, vitum varla af þeim þar sem að þær eru bara úti á svölum mest allan daginn. Tökum þær bara inn á kvöldin.
Sitjum núna á Mc Donalds þar sem að við getum verið með frítt net í eina klst á dag. Þurfum reyndar að hafa verslað eithvað hjá þeim. En við höldum því í algjöru lágmarki, kyptum eina kók :P
Annars er frekar skrítið að vera svona útlendingur en ekki túristi í öðru landi. Erum ekki á þönum að versla sem mest af fötum, skoða merkar minjar eða djamma frá okkur lífið.... Wierd...

Var samt að fá frekar pirrandi e-mail frá skólanum um að þar sem svo lítil þáttaka væri á design og arkitektur brautinni þá væri búið að ákveða að fresta skólabyrjun um viku og í staðinn yrði ekkert vetrarfrí.... frábært! hvað á ég að gera af mér fram til 18 ágúst? (án þess að eyða peningum?) Áslaugar braut byrjar 11. þannig að ég verð einhvernveginn að bjarga mér sjálf. Fara í langa göngutúra með bókina sem Adda frænka gaf mér um Kaupmannahöfn í hönd... eða eithvað álíka....

Jæja, bara 39 mín eftir af McDonalds netinu mínu eftir...

Látum heyra í okkur aftur við tækifæri ;)

03 ágúst 2008

Tíminn líður hratt...

...á gervihnattaöld. Hraðar sérhvern dag, hraðar sérhvert kvöld....

Icy hefur sannarlega lög að mæla!

Jæja, þá fer að líða að brottför. Aðeins tveir dagar til að klára allar seinustu reddingarnar og svo fljúgum við út snemma á miðvikudagsmorguninn!
Var að tala við Ebbu frænku sem ætlar að vera svo elskuleg að hýsa okkur fyrst um sinn. Verðum þarna í íbúð með þremur köttum og tveimur rottum! Eigum eftir að hafa það mjög kósý saman ;)
Svo er bara að krossleggja fingur og vonast eftir því að við finnum og fáum draumaíbúðina í september! Wish us luck!

Kveð í bili

29 júlí 2008

Tímaþröng

Næst á dagskrá er:

Kveðjuparty
Pakka í töskur
Velja og hafna
Kveðja rúmið
Kveðja köttinn
Kveðja hundinn (hennar Örnu þá)
Setja þjófavörn á herbergið svo að enginn sé neitt að nota það!
Henda kláminu
Finna pleimókall (úskýrist síðar)
Hætta í vinnunni

Góða nótt

17 júlí 2008

20 dagar til brottfarar...



...það gengur því miður ekkert hjá okkur í íbúðaleið.


- Jógakennarinn og okrarinn beilaði á okkur

- Sebastian "íslenskunemi" (my ass) beilaði líka

- Gellan á Amager virðist vera að beila líka


Þetta verður nú meira ævintýrið. Kannski förum við út með það eitt að markmiði að finna okkur einhvern stað til að gista á næstu nótt, og þá óska ég þess eins að enda ekki með því að gista í kirkjugarði! Heyrt hefur maður sögu þá!


En ef einhverjum dettur í hug lausn á okkar vanda þá endilega látið vita ;) sem fyrst!