01 september 2008

Sweet home... (Alabama)



Hvað hugsar þú þegar þú heyrir orðið Transporter?


Ég hugsa, stóri rauði bíllinn hans pabba, eða einfaldlega bíll í stærri kantinum.

Náungarnir á fjórum sinnum þrjátíuogfimm leigubílastöðinni hugsa greinilega ekki það sama og ég!

Ég hringdi í þessar elskur og bað um bíl sem gæti flutt tvö hjól og sex töskur.
Ég hélt að þetta væri frekar simpelt og var frekar ánægð með þetta símtal.
Þegar leigubíllinn kom loksins, eftir 20 min. bið þá var þetta lítill fólksbíll með svona hjólastandi aftaná.

Samtalið var eitthvað á þessa leið

Leigubílstjóri: seks taske og to cykler, det er OK.
Hann labbaði upp að hrúgunni okkar og sá þá að ein taskan var kassi.
..også den der? pfff, nej! jeg ringer til stationen.
Við hugsuðum með okkur, vá frábært, hann ætlar að hringja, þvílíkur herramaður!

Hann fór og 20 min. seinna fórum við að undrast en þá birtist fyrir hornið annar bíll, alveg nákvæmlega sömu stærðar og meira að segja líka Benz.

Við vorum að spá í að snúa bara rössunum í hann og þykjast ekkert kannast við þetta en ákváðum að pirrast aðeins í honum.

Ég sagði: Vi har brug for en stor bil
Leigubílstjóri: hva'saa?
Ég: STOR BIL, TRANSPORTER! (Heill hellingur af svoleiðis leigubílum á Íslandi)
Leigubílstjóri: hva'saa?, en störere bil
... aaa, en station car!?!

!!!!! Fáviti!!!!!!

Leigubílstjóri: Ok, I skal ringe til stationen.

Hann fór og við hringdum, pöntuðum station bíl og okkur var sagt að það væri lengri bið eftir stórum bíl, 40 min. síðar kom stationbíllinn.

Þegar við vorum búnar að troða öllu í bílinn hjólaði Arna af stað og ég settist inn i bílinn og fékk þá þvílíkar skammir fyrir að hafa pantað tvo stationbíla þegar ég þurfti bara einn. HVAÐ? Ég sagði að aldrei. Við þrættum aðeins en síðan gaf ég honum 10 krónur í tips og hann var svo ánægður að þið gætuð ekki trúað því.



Þegar dótið var komið upp allar fimm hæðirnar vorum við líklega búnar að sjá fleiri kóngulær en um alla ævi okkur samanlagt. Arna opnaði klósetthurðina og þar blasti við eitt forlátt klósett og járnkeðja hangandi úr loftinu. Forvitninni svalaði ég með því að tosa í keðjuna og það sturtaðist niður, og upp úr okkur kom algjör geðveikishlátur.



Ekki má samt gleyma að nefna það að við fórum í IKEA í dag/kvöld.


Sorry Dagný, mér þykir leiðinlegt að segja það, ég varð fyrir miklum vonbrigðum. Þetta virkar eiginlega minna en á Íslandi og er ekki einu sinni jafn flott. Púh á IKEA, í Danmörku, þeas.



Mín fór nú samt beint í vörn og sagði að hinar IKEA búðirnar væru örugglega miklu flottari.

2 ummæli:

Helga H. sagði...

Ikea er leiðinlegt í Århus líka. Áfram Ísland!

Dagný sagði...

Um þessa heimskulegustu mynd aldarinnar hugsa ég þegar ég heyri orðið transporter..... http://www.youtube.com/watch?v=V_1uBjVJXu4

Bömmer með IKEA, er þetta stóra IKEAð sem við ætluðum alltaf í? :S
Ég held að málið sé að skreppa bara til svíþjóðar í IKEA ef þeirra eru svona sökkí sökkí. Ég er enþá að jafna mig eftir IKEAð í svíþjóð sem ég fór í þegar ég var svona 11 ára. Það var eins og okkar, bara 4 hæðir!!!!!!! Baaaaahhhh!! Craaaaazzzyyyyyneeeeessss!!! :P

Og vel á minnst. Smá 'tips' tip ;) Maður gefur tips fyrir GÓÐA þjónustulund, ekki brjálaða danska/tyrkneska leigubílstjóra sem öskra á mann ;) Ekki það að 10 kr. séu fúlgur fjár, en bara vildi skjóta þessu inn.