Fullt búið að gerast ☺
Fyrsti dagurinn í skólanum var nokkuð skemmtilegur! Byrjað var á almennri kynningu á skólanum (sem ég held að ég hafi skilið…) og svo talaði skólastjórinn helling um hvernig stemmningin í skólanum ætti að vera og eithvað svoleiðis (skildi ekki mikið af því…) . Eftir það var okkur skipt í hópa og hver hópur fékk ákveðna byggingu í nágreninu og 250 dkr og átti svo að fara og kaupa í köku sem átti að líta út eins og byggingin. Soldið fyndnar reddingar sem voru þarna.
Það fyrsta sem mér datt í hug þegar talað var um köku í laginu eins og bygging, var að búa til mót úr álpappír og baka köku í því, en þar hugsum við Íslendingar og Danir ekki eins. Danska aðferðin er náttla að búa til Lagkage sem er beisiklí mjög þunnur kökubotn með helling af sultu, rjóma, kremi og ávöxtum staflað upp og svo kanski marsipan flatt út og sett utan um staflan. Síðan til að búa til glugga, súlur eða einhverjar áferðir þá var mismunandi nammi hlaðið utan á eða klístrað saman með marsipani. Þannig að byggingarnar enduðu með að líta út eins og lítil nammifjöll. Og svo var þessu öllu gúlpað niður eftir að búið var að dást að þessu og kjósa það flottasta.
Í dag var svo fyrsti alvöru dagurinn ef svo má segja. Í minni deild erum við sex krakkar og tveir kennarar. Hópurinn virkar mjög vel á mig... miðað við það sem ég skil ;)
Konukennarinn (svíi sem ég kann ekki að skrifa nafnið á) er húsgagnahönnuður og hún sá um fyrir hádegi. Vorum að búa til pennahaldara úr plasti. Og svo eftir hádegi fórum við með kallkennaranum (arkitekt og dani sem ég náði ekki hvað heitir) niðrí bæ þar sem hann sýndi okkur búð með fullt af arkitekta bókum og blöðum ásamt stórum lager af teikniáhöldum og mismunandi pappír í öllum þykktum og stærðum. Einnig skoðuðum við nokkrar byggingar í nágreninu.
Í vettvangsferðinni hélt ég oft að ég væri þvílíkt að skilja dönskuna hans, en þá sagði hann mér í stuttu máli á ensku hvað hann hefði verið að segja og komst ég þá að því að ég var alveg að misskilja hann... vonandi kemur þetta ;)
En svo er að segja frá því að við erum komnar með íbúð!
Pínkulítil ris íbúð á frábærum stað (Fredriksvej 17 í Fredriksberg, gatan er við hliðiná dýragarðinum). Tvö herbergi, eldhús og klósett á ekki mikinn pening.
Hún er soldið fyndin vegna þess að baðherbergið er eins og kústaskápur, þar sem er bara pláss fyrir klósett og vask. Þannig að sturtan er inni í öðru herberginu! Verð að taka mynd af þessu þegar við flytjum inn...
Þannig að við getum flutt þangað inn þann 31 ágúst og verðum með hana til 1 janúar.
Nú geta allir farið að undirbúa heimsóknir til okkar, tökum við pöntunum um gólfsvefnpláss í gegnum sms og e-mail, fyrstur pantar fyrstur fær ;)
En allavega, dettur ekki meira í hug til að segja frá
xoxo
Arna Dögg
19 ágúst 2008
...
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
úúúú hlakka til að sjá myndirnar :P
JEIJ! Til hamingju með íbúðina! Hún hljómar mjög vel ;)
Flott að fyrsta vikan gekk svona vel hjá þér :D Ég ætla rétt að vona að þú hafir tekið myndir af kökunum!
Bon courage!!
Nína
Til hamingju með íbúðina! :D Frábært að heyra að það gangi allt vel hjá ykkur.
Kv,
Helga H.
Skrifa ummæli