Ok, ég hef verið að forðast það að segja frá Berlínar ferðinni hérna vegna þess að við gerðum svo mikið. Ég punktaði niður helstu atriðin í minnisbókina mína, svona svo ég gleymdi engu, og svo ætlaði ég að skrifa helling hérna í bloggið.... en er ekki alveg að nenna þvi ;)
Þannig að hérna eru bara punktarnir:
Mánudagur 15. Sept
-Mæting kl 6 am rúta-skip-rúta-berlín
-Pegasus hostel 5. Hæð í herbergi með Mettu, Lisbeth og Önnu
-Múrinn –mikið veggjakrot
-Sushi með hinum og þessum úr mínum og Áslaugar hópum
-Bjór með held ég öllum nemendunum
-Rölt heim á hostel –sáum alvöru pönkara, eggjahvítur, pissa úti, sikkersnælur í eyrum og allt
Þriðjudagur 16. Sept
-Kaldur morgun
-Skóla kynning –fannst ekki spennandi persónulega... allt nám á þýsku!
-Seinni part dags skiptust deildirnar, áslaug fór með stelpunum að skoða hönnunarbúðir og ég fór með minni í skoðunarferð:
-Við sáum Brandenburgarhliðið, Holocaust Monument og Gay Monument, fórum upp í útsýniskúplin yfir Reichstag byggingunni og fórum svo á safnið Haus der Kulturen der Weit
-Um kvöldið borðaði hver deild saman
-Hittumst seinna á stórum tango stað í húsí frá sirka 1920 sem hafði varla verið breytt frá því eftir stríð. Pörin á gólfinu tóku dansinn greinilega þvílíkt alvarlega : )
Miðvikudagur 17. Sept
-Safn í gamalli lestarstöð Hamburger Bahnhof
-Frí eftir hádegi, ég ákvað að fara í ferð sem kennarinn minn var að bjóða upp á þar sem við ætluðum að fara að skoða minjar frá múrnum og stríðinu. Vorum lítill hópur bara sex nemendur plús kennarinn.
-Sáum þversnið af múrnum og The death strip, Minnisvarða um kirkju sem var rifin vegna þess að hún var fyrir múrnum, Mauerpark að róla okkur í þvílíkt löngum rólum með rosalegu útsýni, gamla yfirgefna lestarteina í miðri borginni (nokkuð viss um að við máttum ekki vera þarna þurftum að smeigja okkur á milli og undir nokkurra girðinga til að komast þangað :P ) , hlupum upp á Kreuzberg að sjá útsýnið og svo enduðum við á gömlum flugvelli sem Mogens (kennari) sagði vera besta dæmi um fasista arkitektur sem hann vissi um.
-Enduðum daginn á að vera með sameiginlegan kvöldmat uppi á herbergi við Áslaug og stelpurnar í hópnum mínum.
Fimmtudagur 18. Sept
-Langur göngutúr, allur skólinn, að skoða merkar byggingar. Fór svo með Áslaugu og bekledningsdesign stelpunum á Bauhaus safnið.
-Um kvöldið var sameiginlegur kvöldmatur fyrir allan hópinn.
-Enduðum mörg kvöldin á bjór og foosball keppni
Föstudagur 19. Sept
-Við Áslaug fórum í Modulor, búð sem hefur Allt! Sem hægt væri að ímynda sér til módelgerðar og ýmislegrar handavinnu (það eina sem ég keypti í allri ferðinni var í þessari búð, ein mappa sem ég ætla að nota sem portfólíómöppu)
-Lagt af stað heim kl 2 frá hostelinu, tók allan daginn, vorum að koma í íbúðina rétt fyrir miðnætti
Erum báðar búnar að setja inn nokkrar myndir á facebook ef þið viljið sjá smá brot af ferðinni ;)
Annars þá vorum við verið í kroppateikning mest alla vikuna, eða croquis teikningu. Vorum að æfa hraða í skissuteikningu og því að teikna rétt hlutföll og svoleiðis. Módelin okkar þessa vikuna hafa verið bútuð hippa kona á fertugsaldri og yndislega hommalegur og vöðvastæltur svartur maður á fimmtugsaldri. Soldið skemmtilegt að sjá hvernig hann nær að gera venjulegustu stellingar afskaplega kvennlegar og hvernig hann glottir oft til strákana þriggja í bekknum þegar að han stillir sér kviknakinn upp fyrir framan okkur ;)
Síðan á föstudaginn þá var ég á safnarúnti um borgina með hópnum mínum og Áslaug var að sýna modephoto verkefnið sitt.
Fengum svo Ebbu og Indriða í mat til okkar á laugardagskvöldið. Elduðum dýrindis mat (smá klúður með þýska eftirréttinn ;) ) og svo sátum við yfir spilum (kani) og spjalli fam eftir kvöldi. Voðalega fullorðins eithvað : )
En jæja, nóg í bili
xoxo
Arna Dögg
29 september 2008
Oft spurði ég mömmu er ung ég var, sér einhver fyrir hvað verða skal…
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
Þetta hefur greinilega verið góð ferð, og myndirnar eru skemmtilegar.
Hversu mikið bútuð er þessi á fertugsaldrinum? Er það ekki svolítið ógeðslegt? Annars er merkilegt hvað einn stafur getur breytt miklu!
kv
Pabbi
gaman að heyra loksins frá ykkur :D
Hljómar vel þessi ferð
gangi ykkur vel,
Nína
Takk pabbi
Já kanski ad hafa tad á hreinu... konan var búttud en ekki bútud! Vid vorum ekki ad teikna konu sem var í bitum ;)
Arna Døgg
Skrifa ummæli