...alltaf að spá í því hvað allt kostar og finna út með hinum snúnustu reikningum hvernig hægt sé að spara. Þetta er víst kallast að fullorðnast og forðast það að vera á kúpunni. Veit ekki hvort mig langi til að vera fullorðin lengur!
Í dag er ég að gera persónulegt met. Ég er bara í rólegheitunum í kvöld og reyndar í gær líka, ótrúlegt. Önnur staðfesting á að maður sé að fullorðnast, eða hvað?
Eitt dæmi um kjarakaup:
Keyptum þetta alveg hreint frábæra múslí, í eins kílós pakkningu. Góð kaup? Já.
En eftir nokkra morgna með múslíi og jógúrti, safa og vínberjum þá fórum við að velta því fyrir okkur hversu lengi við myndum endast. Ákváðum að næst skyldum við kaupa Kellog's og mjólk.
Annað dæmi um kjarakaup:
Stór kassi sveppum. Getum notað þá á samlokur (kvöldmaturinn í kvöld), í pastarétt (kvöldmaturinn í gær), sveppir með kókinu... já, það er í alvörunni gott.
Og af því að við erum svo mikið að spara og svona skemmtilegt þá hugsum við aldrei neitt út fyrir þessar viðurkenndu máltíðir. Einu máltíðirnar sem eru á verslunarplaninu okkar eru morgunmatur, hádegismatur og kvöldmatur.
Rétt í þessu löbbuðu tveir krakkar að okkur hérna í þessu skemmtilega horni á Mcdonalds og horfðu á okkur og glottu út í annað. Kannski svolítið undarleg sjón, tvær ungar stelpur sem sitja við tölvur úti í horni og pikka eins og óðar séu til þess að nýta þennan klukkutíma sem þær fá frítt á veraldarvefnum í boði Mcdonalds.
Mig langaði mest að segja við þau: Hey ég er allavegana ekki berfætt í náttbuxum og að borða á mcdonalds klukkan 11 að kvöldi til!
Hefði pottþétt gert það hefði ég kunnað það...
10 min. til stefnu. Best að nýta tímann vel.
Bless í bili
Áslaug
09 ágúst 2008
Ótrúlega fullorðins....
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Já ég held að kellogs sé góð hugmynd því það þarf svo mikið til að láta múslí "virka" að það kemur örugglega bara verr út....allavegana miðað við hvað þú skrifaðir ;)
En já, kók og sveppir..............
matseðill fyrir vikuna og magntilboð á hakki o.fl. í Nettó er algerlega sparnaðarráðið frá mér :)
við söknum þín litla mín
Skrifa ummæli