08 ágúst 2008

McDonalds, McDonalds, Kentucky Fried Chicken og Pizza Hut

Bara svo að það sé á hreinu þá er það ekki á matseðlinum okkar. Titill þessa blogs á að syngjast!

Well... dagur 3 og við erum enn á lífi ;)

Erum að reyna að finna okkur gott símakerfi til að joina en það gengur svona upp og ofan. Voða mikið af ruglingslegum upplýsingum á netinu. Frítt þetta en borgar smá fyrir hitt... og samkvæmt Ebbu getur þetta hitt verið Mjög dýrt. Þannig að við ætlum bara að fara á næstu bensínstöð og segja bara úllen dúllen doff...

Copenhagen fashion week er í gangi núna. Ráðhústorgið er fullt af skinny models með eins hárgreiðslu. Soldið fyndið. Svo er run-way-show-ið sýnt á stórum skjá á torginu. Gaman að þessu :D

Annars er McDonalds að gera góða hluti, internetlega séð... eða allavegana þessi frábæri nágranni þeirra sem hefur gleymt að læsa netinu sínu. STUPID!!!.....


Næst komum við hingað klukkan 9 þegar opnar og byrjum að hala niður ólöglegum varning í stórum stíl. Gott að hafa tvær tölvur!!! :P


Bless í bili ;)

1 ummæli:

Nína Gunnarsdóttir sagði...

Sælar stúlkur! Alltaf gaman að lesa fréttir, vonandi eigið þið eftir að vera duglegar við skrifin (þegar það er ekki brjálað að gera í skólanum). Verst að ég missti af ykkur :( Hafið það sem allra best og good luck við íbúðaleitina!!
kossar og knús
Nína