07 ágúst 2008

Komnar....

Jæja, þá erum við komnar til útlandsins. Erum í Valby í íbúðinni hennar Ebbu þar sem tveir af þremur köttum eru þeir frekustu sem ég hef hitt! En rotturnar eru ágætar, vitum varla af þeim þar sem að þær eru bara úti á svölum mest allan daginn. Tökum þær bara inn á kvöldin.
Sitjum núna á Mc Donalds þar sem að við getum verið með frítt net í eina klst á dag. Þurfum reyndar að hafa verslað eithvað hjá þeim. En við höldum því í algjöru lágmarki, kyptum eina kók :P
Annars er frekar skrítið að vera svona útlendingur en ekki túristi í öðru landi. Erum ekki á þönum að versla sem mest af fötum, skoða merkar minjar eða djamma frá okkur lífið.... Wierd...

Var samt að fá frekar pirrandi e-mail frá skólanum um að þar sem svo lítil þáttaka væri á design og arkitektur brautinni þá væri búið að ákveða að fresta skólabyrjun um viku og í staðinn yrði ekkert vetrarfrí.... frábært! hvað á ég að gera af mér fram til 18 ágúst? (án þess að eyða peningum?) Áslaugar braut byrjar 11. þannig að ég verð einhvernveginn að bjarga mér sjálf. Fara í langa göngutúra með bókina sem Adda frænka gaf mér um Kaupmannahöfn í hönd... eða eithvað álíka....

Jæja, bara 39 mín eftir af McDonalds netinu mínu eftir...

Látum heyra í okkur aftur við tækifæri ;)

1 ummæli:

Tommi sagði...

fúl frestun, en þá kanski nýtist tíminn vel við íbúðaleit. Ég er búinn að setja þetta sem Favorite, og hlakka til að fylgjast með.

kv
T (pabbi Örnu)